Almennt ferli við umsókn að Evrópusambandinu

Formlegt upphaf

Aðildarferlið hefst formlega með því að ríki sem óskar aðildar sendir aðildarumsókn til ráðherraráðs ESB. Að fenginni aðildarumsókn felur ráðherraráðið framkvæmdastjórn ESB að fara með meðferð umsóknarinnar og gefa álit sitt á henni til ráðherraráðsins (svokallað "avis"). Framkvæmdastjórnin leggur í framhaldinu mat á umsóknina og leggur til það ferli sem viðhaft skal, þ.m.t. hvort forsendur séu fyrir hendi að hefja aðildarviðræður þegar í stað.

Uppfylling skilyrða

Meginviðmiðin sem framkvæmdarstjórnin horfir til eru svonefnd "Kaupmannahafnarviðmið" frá 22. júní 1993, sem skera úr um hvort ríki fullnægir skilyrðum aðildar að ESB.
Aðild tilskilur að umsóknarríki búi við stöðugar stofnanir sem tryggja lýðræði, lögfestu, mannréttindi og virðingu fyrir minnihlutahópum og vernd þeirra, markaðshagkerfi, sem og getu til að standast samkeppnisþrýsting og markaðsöfl innan sambandsins. Aðild gengur út frá getu umsóknarríkis til að fylgja skyldum aðildar, þar með talið að gangast undir markmið um pólitískt og efnahagslegt bandalag og myntbandalag.
Til að leggja mat á viðkomandi umsókn sendir framkvæmdastjórnin umsóknarríki fjölmargar spurningar um stjórnsýslu, stjórnmál og efnahagsmál og skrifar álit sitt á grundvelli svaranna sem sent er leiðtogaráði ESB. Á endanum tekur leiðtogaráðið ákvörðun um hvort aðildarviðræður skuli hafnar við umsóknarríkið.

Greining á löggjöf

Eitt fyrsta skref við undirbúning aðildarviðræðna er að greina löggjög umsóknarríkis í því skyni að sjá hve miklu leyti hún er í samræmi við löggjöf ESB. Markmiðið þess er að afmarka þá þætti sem viðræður þurfa að beinast að og skapa grundvöll til að meta framgang viðkomandi ríkis í aðlögun sinni að löggjöf ESB. Að lokinni þessari greiningu verður til grunnur formlegra samningaviðræðna og viðkomandi umsóknarríki og aðildarríki ESB móta og leggja fram samningsafstöðu sína í þeim málum sem eftir er að semja um. ESB mótar sér sameiginlega samningsafstöðu á grundvelli tillagna framkvæmdastjórnar sambandsins.

Formlegar samningaviðræður

Formlegar viðræður fara fram á ríkjaráðstefnum milli aðildarríkja ESB og umsóknarríkis. Viðræðurnar byggjast á hinni sameiginlegu samningsafstöðu sem aðildarríkin hafa einróma samþykkt á grunni tillagna framkvæmdastjórnarinnar. Aðilar skiptast á samningsafstöðu þar til sameiginleg niðurstaða hefur náðst þannig að loka megi viðræðum með formlegum hætti, kafla fyrir kafla.
Löggjöf Evrópusambandsins skiptist í 35 kafla og er samið um hvern þeirra fyrir sig. Einróma samþykki aðildarríkjanna þarf til að hefja viðræður um hvern og einn kafla og að sama skapi til að ljúka þeim. Ísland hefur þegar tekið upp stóran hluta löggjafar 22ja af 35 köflum lagaverks ESB í gegnum EES-samninginn frá 1994. Auk þess hefur lagaumhverfi Íslands verið aðlagað þátttöku í alþjóðlegu samstarfi á fleiri sviðum.

Texti aðildarsáttmála undirbúinn

Að loknum samningaviðræðum um hvern einstakan kafla tekur við vinna er snýr að því að yfirfæra samningsniðurstöðuna í lagatexta. Sú vinna fer fram í sérstökum vinnuhópi ráðherraráðsins sem síðan ber textann undir umsóknarríki. Þessi vinna fer í raun fram samhliða samningaviðræðum um aðra kafla og bíður því ekki heildarniðurstöðu viðræðna. Þegar öllum köflum hefur verið lokað með þessum hætti liggur aðildarsamningur fyrir.

Aðildarsamningur, fullgildingarferli og þátttaka í starfi ESB

Ráðherraráð ESB þarf að fallast á aðildarsamning og hann þarf einnig að samþykkja í Evrópuþinginu. Að auki þurfa öll aðildarríki ESB að fullgilda hann, auk umsóknarríkisins sjálfs. Umsóknarríki sem undirritað hefur aðildarsamning sem bíður fullgildingar þarf ekki að bíða loka fullgildingarferlis til að taka þátt í störfum ESB. Þegar við undirritun aðildarsamnings fær ríki áheyrnaraðild að öllum stofnunum ESB og er því fullur þátttakandi í starfi ESB meðan fullgildingarferlið stendur yfir. Viðkomandi ríki fær þó ekki framkvæmdastjóra eða dómara við Evrópudómstólana fyrr en aðildarsamningur hefur tekið gildi og nýtur ekki atkvæðisréttar.

Um staðfestingarferlið að Íslands hálfu og önnur stjórnskipuleg álitamál við aðild að ESB er fjallað í IX. kafla nefndarálits frá meirihluta utanríkismálanefndar.



 
 


Nánari upplýsingar um aðildarviðræður


 

 

efnisyfirlit síðunnar